þriðjudagur, september 7
jahá
það er margt í gangi þessa góðu daga. er á fullu flugi við að leita mér að íbúð (ábendingar um 3ja herb íbúð með garði eða svölum, í laugarneshverfi, hlíðum eða kannski austur-vesturbæ vel þegnar) þarf að vera eðal piparpæjupleis og engar kjallararottuholur koma til greina!
vinnan er alger snilld, byrja í fullri vinnu 20.sept...svona til að undirbúa almennilega stöðu mína sem verkefnastjóri. dagar eins og í dag eru samt helv... harðir þar sem 3 starfsmenn eru veikir og auk þess dynur óveðurskallinn á gluggunum :( sökk!
síðan er ég á leið til köben á morgun - jeeee minn eini hvað ég er orðin uppspennt enda fæ ég stanslausar sms-sendingar frá skutlunum mínum þar í landi um plön helgarinnar :)
tjaó rigning - hola sól!

föstudagur, ágúst 20
jeah...
það er aldeilis kominn skriður á lífsins leik núna... búin að vera á stjórnandanámskeiði hjá ítr (þó ég geti með sanni sagt að ég sé meðfætt stjórnendafrík og þurfi klárlega ekki á þessu að halda) ásamt því að hoppa í tíma í afbrotafræði og siðfræði upp í kennó þess á milli. pfúff þetta verður rosaleg önn.
í morgun var síðan fyrsti vinnudagurinn í ölduselsskóla - ekkert nema gott um það að segja. núna er ég ss að taka svaðalega vel eftir blabbli kennarans... enda erfitt að einbeita sér þegar sólin skín skært inn um gluggann...öskrandi...komdu út að leika!!
í kvöld er teiti hjá andra, lögfræðingi með meiru, óli félagi bauð mér og co í bjórsull ehs dallaskörfuboltadudes á prikinu, eeeen þrátt fyrir mikin þrýsting tjúttsins verð ég að gæta hófs þetta föstudagskvöld þar sem skólinn hefst kl hálf níu í fyrramálið....hvað er það?
á morgun verður síðan geim helgarinnar þar sem sigurliðið! mun snæða á hótel sögu, væta tærnar í gleðidrykkjum og skemmta sér konunglega fram á rauða "menningar"nótt. gott að geta tjúttað í þágu menningar og mennta.
búin að setja inn örfár myndir frá blátt, undir myndir2, en þar sem ég er hálfflutt til rvk útaf skóla og vinnu og amma ekki frú ADSL þá klára ég það verkefni um leið og ég kemst í sveitasæluna á ný.
sjáumst í ómenningunni um helgina....knús

mánudagur, ágúst 16
sigurvíma
já ég vil óska okkur öllum - sérstaklega extra duglegu orkuboltunum sem sváfu varla undir það síðasta - innilega til hamingju með sigurinn á laugardag!! eða rústið eins og ég vil kalla það :) 99atkv munur!
Það var ekkert smá magnað móment að fá hringingu frá stellu (þar sem sekúndurnar sem það tók að hlaupa í símann liðu eins og vikur) og heyra fagnaðarópin í fólkinu mínu sem æpti og öskraði af kátínu hinu megin á línunni:) vúúúhúúú...wow wow wow
ég var stödd í innflutningsteiti hjá elsu og silla (sem var frábært-thanx alot:)) en gat þó ekki hamið sjálfa mig, skellti mér í darraðadans gleðinnar á svölunum fólkinu inni til ómældrar ánægju (eða hneykslunar). sem betur fer var kl frekar snemma kvölds þar sem hamingjuskríkir mínir ómuðu milli allra blokka í bakkahverfinu!
eftir þvílíka máltíð og góðar veitingar sem runnu beint niður í tær, tók við þetta þvílíka sigurteiti á pravda. ég hef bara ekki upplifað aðra eins gleði og séð jafn mörg brosandi andlit á einu kvöldi. pfúff...þetta var ólýsanlegt. stanslaus knús, kossar og hamingjuóskir flæddu á milli allra sigurvegaranna og formaður heimdallar var sérstaklega heiðraður með miklum látum. tók mikið af skemmtilegum myndum sem ég set inn á morgun.
nú tekur bara alvaran við hjá öllum.
skólinn og nýja vinnan bíða mín á miðvikudag - sem er alger snilld - þannig að morgundagurinn verður nýttur í kúr og rólegheit.
knús..

fimmtudagur, ágúst 12
allt að gerast
var að koma heim af 50cent og g-unit tónleikum. einu orði sagt maaagnað! við tinna ákváðum að fá showið bara beint í æð, láta eins og ungpíur og sletta almennilega úr rappklaufunum. komnar nánast upp á svið (svolítið ýkt) með hendur á lofti, dansandi sveittar og sáttar við vatnið sem hellt var yfir crowdið! já, held við höfum fallið skítsæmilega inn í hóp trylltra táninga.
annað, kosningar í stjórn heimdallar eru á laugardag kl eitt í valhöll. það er alger nauðsyn að fólk vegi og meti forsendur framboðanna og skoði virkilega vel hvað frambjóðendur hafi fram að færa. blátt og helga. í mínum huga er þetta engin spurning. ég er voðalega lítið fyrir fólk sem svindlar og ákv. einstaklinga sem skipta um lið á miðri leið eftir hentugleika. eða veit ekki hverju.
"Undanfarin ár hafa ungir sjálfstæðismenn fylgt eindreginni einangrunarstefnu. Í stað þess að vinna hugmyndafræði sinni brautargengi með opnu og kröftugu félagstarfi, hafa þeir lokað félagsstarfinu og einbeitt sér að því að halda völdum. Þessi einangrunarstefna náði hámarki síðastliðið haust þegar þáverandi stjórn Heimdallar hindraði inngöngu 1100 ungra sjálfstæðismanna í félagið þegar fyrir dyrum var kosning á aðalfundi. Fyrirséð var að framboð undir forystu Bolla Thoroddsen myndi hafa sigur og við það gat þáverandi stjórn, sem studdi mjög mótherja Bolla, ekki unað. Þetta kosningasvindl mun verða svartur blettur á innra starfi Sjálfstæðisflokksins um ókomna tíð og til skammar fyrir þá sem að því stóðu, þar á meðal Helgu Árnadóttur, þáverandi varaformann félagsins, sem býður sig nú fram til formennsku í Heimdalli undir merkjum sátta."
þetta er í raun bara spurning um hvort fólk velji "klíkudall" eða opin heimdall fyrir unga fólkið.
nú get ég sofið vært.
nighty

mánudagur, ágúst 9
fjörið komið af stað...
...sótti um vinnu sem verkefnastjóri frístundaheimilis í ölduselsskóla fyrir veturinn. svona til að hafa almennilegt aksjón með náminu í kennó. ó já, snemma morguns sl föstudag fékk ég gleðilegt símtal þar sem mér var tjáð að vegna "faglegs bakgrunns og gríðarlega góðra meðmæla hafi ég verið valin fram yfir aðra umsækjendur". úff ég fæ aldrei nóg af að segja þessa setningu :)
fór á the village með tinnu á föstudag. pfúff hvað ég svitnaði grenjaði og hló. strákurinn við hliðina á mér stakk fingrinum í eyrað eftir fyrsta öskrið mitt og treysti sér greinilega ekki til að losa hann þaðan fyrr en myndinni lauk. ég kannast reyndar vel við kauða og gat því varað hann við, ásamt því að biðja hann afsökunar eftir á. verst er ef ég var pirrandi pían sem drap stemmningu stefnumótsins.
grillið um helgina var snilld! fullt af fólki og stemmningin var mögnuð. heimasíða veisluhaldara hefur nú verið opnuð og ég mæli með að allir muni eftir að kjósa rétt á laugardaginn kl eitt!
næsta helgi verður að vera þaulskipulögð þar sem ættarmót, innflutningsteiti og sigurpartý lendir allt á sama kvöldinu. geri ráð fyrir að ég neyðist til að velja. þó ekki erfitt val.
jæja.. ætla að rembast við að kenna hvolpinum Kríu að sitja. sendi samt alla mína orku í ármúla eitt!!
kv.ab

föstudagur, ágúst 6
gerum það saman...
góður dagur, mjööög góður dagur. við mamma og pabbi vorum búin að vera gift í 20 ár í dag og að því tilefni bauð njalli upp á staðgóðan morgunverð með fimm mismunandi tegundum af heimabökuðum bollum. síðan fórum við litla familían upp að Hellum, þar sem systir pabba og co eru að byggja bústað. hjálpuðum til við stúss og fengum feit hrosssabjúgu í matinn að launum:) komum heim, ég gerði glataða tilraun til að mixa mojhito fyrir okkur þremenningana og eftir glataðann drykk raulaði ég eitt lítið hjartnæmt lag sem rann beint í æð hjá hjónunum. hverjum þykir sinn fugl fagur. til lukku :)
og svo...þetta finnst mér vera vel þess virði að lesa. http://www.glymur.com/svansson/index.php?itemid=239 þar sem ég er nú að hjálpa henni stellu vinkonu örlítið, ásamt öðru góðu fólki við framboð sitt, langaði mig að vekja athygli á þessum góðu skrifum.
Takk

föstudagur, júlí 30
óvirkur ferðalangur
jamm...ég hélt í fáfræði minni um lífið að ég yrði sko aldeilis ekki ein af þeim sem kalla sig "innipúka" um verslunarmannahelgina. ekki að mér þyki mikið til svallhátíða í slagveðri koma, en hefur samt þótt gaman að útigalla, grilli, öl og söng með fjölskyldu og vinum undir berum himni (þó ég hafi yfirleitt leikið prinsessu og gist í húsi, jú og einu sinni í bíl...á!).
en þetta árið horfir öðruvísi við. tunga 2004 verður ekki þar sem annar staðarhaldarinn er á hjólum, fæstir vina minna nenna að húka á unglingahátíðum í spáðu subbuveðri en nokkrir þeirra, sem ég kalla hörkutól, ætla til eyja. bjakk. snobb.
þannig að helgin horfir við mér sem aldrei fyrr. ætla í afmæli til kára í blátt á morgun, verð í kózýfíling með settinu, og kíki kannski á bæjarpúlsinn á sunnudag með tinnu og stellu. ekki slæmt en kannski ekki akkúrat eins og ég hefði viljað hafa það.
ég fæ þó að öllum líkindum uppfyllt óbilaðu þörf mína fyrir útileigu þarnæstu helgi þar sem ættarmót er í vændum. úff hvað það verður spennó. ...voðalega hefur þú stækkað..hvar er maðurinn? en börnin? barnið? nú nú jæja..
en life is bjútifull...

miðvikudagur, júlí 28
ástand
jæja ekki beint skemmtileg skrif en svona er lífið stundum. mamma var í sveitinni með pabba, á langþráðum frídegi þeirra hjóna, þegar hún lenti undir jeppa og stórslasaði sig. flutt með sjúkrabíl á fleygiferð til rvk og í ljós kom að viðbeinið var brotið og sköflungurinn í sundur. marin og blá sett í aðgerð þar sem teini var þrykkt í gegnum merg og bein frá ökkla og upp að hné. ég var hjá henni um nóttina á vöknun gjörgæslu og þar til við komum henni fyrir á deild 6b.
ég verð að tjá mig um (smk nýrri upplifun og gamalli reynslu) að dagleg ummönnun á spítala borgarinnar er ekki upp á marga fiska. ég ætla nú ekki að fara að rekja neinar leiðindasögur um þetta mál hér, en hvað er málið td með að bjóða ekki ósjálfbjarga sjúklingi upp á að komast á salerni, hvað þá að vera þrifin? ekki að ég láti eftir mér að hjálpa ástvini á slæmum degi en eru þessir einföldu hlutir ekki í verkahring starfsfólks heilbrigðisgeirans?
hvað er líka málið með að skoða ekki röntgenmyndir með nálarauga? að sjúklingur þurfi virkilega að kvarta í heilann dag undann verkjum og fara fram á það margsinnis að myndir séu kannaðar betur. og í ljós kemur að það er brot á fleiri stöðum en aðeins viðbeini.
ég á kannski ekkert rétt á því að vera að nöldra. á í raun að vera fegin (sem ég og er) að ekki verr fór. en guð minn almáttugur. við eigum að búa við svokallað "svakalega gott" heilbrigðiskerfi á heimsmælikvarða en einföldustu hlutir eru gersamlega að klikka svaðalega.
jú jú. það kemur sí og æ í fréttum að ekki sé nægt framboð af rúmum á spítölum landsins. en þrátt fyrir það eru laus herbergi og fólk fær að vera eitt á tveggja manna stofu. spörum og sendum sjúklinginn á selfoss. fyrsta spurning læknis í morgun. ertu tilbúin til flutnings?
já já sjúkrabíllinn átti að koma kl eitt. drifin í föt og snyrt. kl tvö var farið að undrast. ó var ykkur ekki sagt hann kæmi kl þrjú? röntgenmyndir fyrir læknana úti á landi? nei það er ekki gert. mesta lagi eru send afrit ef um það kemur beiðni.
komm on!!!! en engin segir neitt. andrea, hættu þessu væli og vertu fegin að þú og þínir séu á lífi.
KNÚS...

fimmtudagur, júlí 22
doink
já mikið hefur drifið á daga drottningar. komin inn í hr..borga 15 þúskall..fann ógreiddan gísóseðil frá kennó..hætti við hr..ekki búin að fá svar frá cbs..ákveð að fara í kennó..er að leita að vinnu..og ætla bara að skella mér á skrall á laugardag hjá ými í blátt.is
búin að bæta inn linkum á unni frænku sem er úti í írlandi, söndru og matta sem eru í köben, kidda sem er að kúra með vinum og svo á frábært fólk á blátt.is.
unnur mín er líka að blabbla pínu á síðunni svo þú getir fylgst örlítið með hér heima. set svo inn myndir með tíð og tíma.
tjaó

þriðjudagur, júní 15
the end
komin til ísland - alveg að þessu sinni - eftir skemmtilega sveitt ferðalag á kastrup þar sem 20 kíló af farangri var tekinn af mér og ég missti nánast af vélinni. núna getið þið fengið ykkur aðra síðu sem upphafssíðu því ég er hætt þessu bloggi;) (nema eitthvað stórskemmtilegt/merkilegt gerist og/eða stundum kveðjur til dönsku píanna)
er ss með íslenska númerið mitt og hlakka til að hitta ykkur í sumar elskurnar :)
knús...ab

ég er andrea